! SKEMMTINEFND MÁGUSAR 2016 – 2017 !
Frá vinstri: Selma Sigurjónsdóttir, Snæfríður Jónsdóttir, Benedikt Guðmundsson, Silja Karen Lindudóttir, Tómas Nielsen og Auður Elísabet Guðrúnardóttir. Á myndina vantar skemmtanastjóra Mágusar og yfirdjammarann, Heru Sólveigu Ívarsdóttir ♥
Helstu partýdýr viðskiptafræðinnar eru saman komin í eina nefnd og það er því óhætt að segja að þetta skólaár geti hreinlega ekki klikkað.
Þessi gull eru ekki aðeins einstaklega góð í bjórþambi, karokí og beerpong, heldur kunna þau sko aldeilis að henda í geggjaða viðburði! Þau hafa gefið það loforð að skíðaferðin í janúar og árshátíðin í mars verði einhver mesta veisla í sögu Mágusar – ekki amalegt 😀