Dagsetning
15/02/2019
19:30 - 23:30
15/02/2019
19:30 - 23:30
Mágus – Markaðsráð // Partý
Hið árlega Mágus-Markaðsráð verður haldið 15.febrúar næstkomandi!
Fyrir þá sem ekki vita er það dagur sem Mágus (félag viðskiptafræðinema við HÍ) keppir við Markaðsráð (félag viðskipta- og hagfræðinema við HR) í ýmsum leikjum í sameiginlegu partýi.
Í ár verður viðburðurinn haldinn með ólíku sniði en undanfarin ár og mun Smáratívolí vera gestgjafi okkar að þessu sinni. Þar verður keppt í liðum í ýmsum leikjum og annað félagið krýndur sigurvegari!
Mágus fer frá vísindaferðinni í Íslenska Gámafélaginu með rútu kl.19 beint upp í Smáratívolí!
Keppt verður í eftirfarandi leikjum:
- 4x Karfa 1 vs. 1 (4 pláss í boði)
- 1x Lazertag 6 vs. 6 (6 pláss í boði)
- 2x Race leikur 4 vs. 4 (8 laus pláss í boði)
- 4x þythokkí 1 vs. 1 (4 laus pláss í boði)
- Drykkjuleikir:
- Flip a cup 6 vs. 6 (6 laus pláss í boði)
- Beer pong 2 vs. 2 (2 laus pláss í boði)
- Chug keppni 2 vs. 2 (2 laus pláss í boði)
Skráning í keppnir fer fram á facebook síðu Mágusar!! BIKARINN HEIM!